mánudagur, janúar 08, 2007 |
ársuppgjör |
Jæja þá er enn eitt árið byrjað og ætli maður ætti ekki að reyna að gera upp gamla árið. Reyndar er minnið mitt ekki alltaf upp á marga fiska svo að ég er nú ekki alveg alltaf að muna allt sem er merkilegt. Ætli það sé ekki best að gera þetta í punkaformi.
- keypti mína fyrstu íbúð - byrjaði í frábærri vinnu hjá frábæru fólki - fór í eina útilegu í húsafell, kíkti niður í einn helli í leiðinni og mikið rosalega var það gaman og flott að sjá. - Teddi byrjaði í skóla og svakaleg spenna sem fylgdi því - var svaka dugleg í líkamsræktinni í byrjun árs, en svo fór að halla undan fæti og ég verð að taka mig svakalega á á þessu ári.
Hehe eins og áður sagði þá er minnið kannski ekki upp á marga fiska og þetta kannski ekki merkilegir hlutir í annarra augum, en þetta er það sem ég man og virðist standa uppúr ;)
Núna er ég bara að bíða eftir síðustu einkunninni minni, gekk ágætlega, búin að fá 4 einkunnir og þar af var eitt fall. En það get ég lagað með því að skrifa eitt stykki ritgerð í sumar. En ég var nú nokkurn veginn búin að ákveða það fyrirfram að skrifa ba ritgerðina mína í sumar og útskrifast þá í október í stað þess að útskrifast í júní. Hinar einkunnirnar voru sæmilegar, ein 6,5, ein 8 og ein 9. Núna bíð ég spennt eftir því að skólinn byrji og ætla bara að vera í 15 einingum og vinna einn dag í viku og annan hvern laugardag. Þannig að ef ég klúðra einhverju í skólanum á vorönninni þá verð ég að dæmast aumingi. |
posted by Latur Bloggari @ 14:20 |
|
|
|
Um mig |
Name: Latur Bloggari
Home: Reykjavík, Iceland
About Me:
See my complete profile
|
Fyrri færslur |
|
Tenglar |
|
Færslusafn |
|
Powered by |
|
|