miðvikudagur, mars 17, 2004 |
Allt í plús |
Mikið rosalega er gaman að vera laus við yfirdráttarheimildina... held ég sé búin að vera með yfirdráttarheimild síðan ég var í 2. bekk í MA. Það er nú soldið langur tími!
Hræðilegt þetta slys á Selfossi. Síðan hvenær á fólk skammbyssu með hljóðdeyfi og til hvers á fólk skammbyssu með hljóðdeyfi. Maður sér alltaf fyrir sér leigumorðingja og spæjara þegar maður hugsar um skammbyssur með hljóðdeyfi. En að manneskjan skuli ekki passa betur upp á byssuna. Enda fær þessi manneskja vonandi dóm fyrir þetta. Pælið svo í greyið krökkunum sem voru svona óheppnir að verða vitni að þessu og hvað þá sá sem skaut. Það segir í fréttum að hann hafi verði skotinn í höfuðið, pælið í því, þetta hefur sennilega verið soldið subbulegt. Það er bara vonandi að allir læri af þessu og geymi byssurnar sínar á vísum stað og skotin annars staðar. |
posted by Latur Bloggari @ 18:04 |
|
|
|
Um mig |
Name: Latur Bloggari
Home: Reykjavík, Iceland
About Me:
See my complete profile
|
Fyrri færslur |
|
Tenglar |
|
Færslusafn |
|
Powered by |
|
|