Latur bloggari... ;)
hey ég hef hvort sem er ekki mikið að segja, afhverju að vera þá alltaf blaðrandi
föstudagur, júní 29, 2007
Dugnaður
jíha, mér tókst að synda kílómeter án þess að stoppa. Enda held ég að fólk í kringum mig hafi haldið að ég væri að verða geðveik. Verkið tók alveg heilar 40 mínútur :$ en maður hefur þá eitthvað til að bæta :p
Ég er á leiðinni norður yfir helgina, ætla að hafa það notalegt þar og skoða hund í leiðinni. Ef allt gengur upp, þá fæ ég hundinn þegar ég flyt norður.
Einkaþjálfarinn var í fríi bæði á miðvikudag og í dag, þannig að þetta hefur ekki verið eins erfið vika og vikan á undan. Hef samt verið nokkuð dugleg við að passa mataræðið og hlakka ég til að sjá hvort það sé ekki einhver árangur af því ;)
posted by Latur Bloggari @ 09:13  
3 Comments:
  • At 2. júlí 2007 kl. 11:16, Anonymous Nafnlaus said…

    Geggjað! Kílómeter! Það er flott! Ég ætla einmitt að reyna að hundskast í sund eftir vinnu í dag (um sex eða sjö). Ertu til?

     
  • At 10. júlí 2007 kl. 11:17, Anonymous Nafnlaus said…

    Fáum við ekkert að frétta?? ;)

    Hvernig er það annars, ertu komin í sumarfrí? Varstu ekki eitthvað að tala um ferð til Ísafjarðar?? ;) :p

     
  • At 10. júlí 2007 kl. 22:00, Blogger Latur Bloggari said…

    ferðin til Ísafjarðar datt uppfyrir þegar frænka mín ákvað að koma til landsins þá helgi sem ég ætlaði að vera þar :s
    en ég hef enn 2 óplanaðar helgar í sumar, þannig að það getur vel verið að ég skelli mér vestur :)

     
Skrifa ummæli
<< Home
 
Um mig

Name: Latur Bloggari
Home: Reykjavík, Iceland
About Me:
See my complete profile
Fyrri færslur
Tenglar
Færslusafn
Powered by

15n41n1

BLOGGER