| mánudagur, maí 24, 2004 |
| Nýr bíll! |
Við keyptum okkur nýjan bíl á laugardaginn. Toyota Corolla Terra L/B árgerð 1998. Keyrður 122 þúsund kílómetra. Geðveikt flottur blár litur á honum. Þeir settu á hann 550 þúsund en við fengum hann á 450 þúsund. Við erum sko alveg í skýjunum! :D
Í gær fórum við í fjölskyldu og húsdýragarðinn í bænum. Teddi var alveg alsæll og hljóp um allt. Sáum öll dýrin og Teddi fékk að fara í hringekjuna, lestina og bátana. Svo prófaði hann líka rafmagnsbíla, trampólín og önnur leiktæki. Enda var hann nokkuð þreyttur í gær þegar við komum heim.
Ég fór ekki í vinnuna í dag, vaknaði með heiftarlega tannpínu og fór ekki í vinnuna. Fór svo til tannsa klukkan 11 í morgun. Hann lagaði aðeins til tönnina en sagði að ég þyrfti að drífa mig til þessa sérfræðings sem ég á að vera farinn til fyrir löngu síðan.
Svo þegar komið var heim úr bænum, hengdi ég upp úr vél sem ég setti af stað í morgun og er búin að setja í 2 vélar eftir það. Svo var ég líka mjög dugleg og vaskaði upp! |
| posted by Latur Bloggari @ 17:28 |
|
|
|
|
| Um mig |
|

Name: Latur Bloggari
Home: Reykjavík, Iceland
About Me:
See my complete profile
|
| Fyrri færslur |
|
| Tenglar |
|
| Færslusafn |
|
| Powered by |
 |
|