mánudagur, október 10, 2005 |
Löglegur vigtardagur |
Jæja í dag er mánudagur og þá stíg ég á viktina og uppfæri teljarann minn. Ég get með stolti sagt að ég hef verið dugleg þessa vikuna :) 2,5 kíló farin í viðbót :D
Annars er lítið að frétta, gerist ekki mikið annað en skóli og vinna á þessu heimili. Að vísu er Teddi búinn að vera heima síðan á fimmtudag, hann er með svo ljótan hósta að við ákváðum að halda honum inni, ætlum að sjá til hvort hann fari á leikskólann á morgun. Það er að byrja smá törn í skólanum hjá mér. Framundan á næstu 4 vikum eru 1 ritgerðarskil (gildir 40%), 1 verkefnaskil (gildir 15%) og 2 próf (annað gildir 50% og hitt 25%). Þannig að ég kem til með að hafa meira en nóg að gera. |
posted by Latur Bloggari @ 13:01 |
|
|
|
Um mig |
Name: Latur Bloggari
Home: Reykjavík, Iceland
About Me:
See my complete profile
|
Fyrri færslur |
|
Tenglar |
|
Færslusafn |
|
Powered by |
|
|