miðvikudagur, ágúst 10, 2005 |
Sumarfrí |
Jæja þá er maður búinn að vera í sumarfríi í 1 og hálfa viku. Við Teddi höfum haft það ágætt hérna heima. Ég er aðeins byrjuð að pakka fyrir flutningana, en þori þó varla að pakka öllu strax því að við erum ekki komin með leigjendur í íbúðina okkar. Erum þó að vonast eftir jákvæðu svari í kvöld því það kom fólk að skoða á mánudaginn.
Síðustu helgi fórum við í smá ferðalag upp á snæfellsnes til að veiða. Veiddum ekki neitt og enduðum soldið blaut því það rigndi alveg helling. Á sunnudeginum fórum við Teddi svo á Skóga þar sem mamma og pabbi voru í veiðiferð ásamt Birki, Kæju, Elíasi, foreldrum Kæju og vinafólki þeirra. Þar var nokkuð mikið veitt og fékk Teddi að draga 4 fiska á land. Það var svakalega spennandi en þó vildi hann svo ekki halda á aflanum til að hægt væri að taka mynd af honum. |
posted by Latur Bloggari @ 10:19 |
|
|
|
Um mig |
Name: Latur Bloggari
Home: Reykjavík, Iceland
About Me:
See my complete profile
|
Fyrri færslur |
|
Tenglar |
|
Færslusafn |
|
Powered by |
|
|