miðvikudagur, mars 15, 2006 |
fréttir |
Vigtin er ekki sammála mér þessa dagana, færist hægt uppá við aftur... en ég hef sagt henni stríð á hendur og ætla mér að rífa mig upp á rassgatinu aftur. Eina vandamálið er skortur á hollum og fjölbreyttum mat á heimilinu, en ég vona að það fari að lagast.
Af húsnæðismálum er það að frétta að við erum kannski farin aðeins fram úr okkur, fórum nefnilega síðustu helgi og skoðuðum 3 íbúðir. Féllum eiginlega alveg fyrir einni þeirra og ætlum að fá að skoða hana aftur um helgina. Í leiðinni ætlum við að láta athuga með rafmagnið þar og pípulagnirnar. Held að það sé sko ekkert vitlaust þegar maður er að spá í að kaupa íbúð í húsi sem var byggt 1947. Við bíðum bara eftir bankanum sem er að gera tilboð í viðskiptin okkar og ef það kemur vel út og gengur vel, þá förum við í greiðslumat í þessari eða næstu viku. Þannig að það styttist allavega í það að við fáum að vita hvort það verður okkar eigið eða leiguhúsnæði sem við komum til með að flytja í þegar við flytjum héðan :oÞ |
posted by Latur Bloggari @ 21:55 |
|
|
|
Um mig |

Name: Latur Bloggari
Home: Reykjavík, Iceland
About Me:
See my complete profile
|
Fyrri færslur |
|
Tenglar |
|
Færslusafn |
|
Powered by |
 |
|