Latur bloggari... ;)
hey ég hef hvort sem er ekki mikið að segja, afhverju að vera þá alltaf blaðrandi
fimmtudagur, mars 09, 2006
jæja
Það var að koma í ljós í gær að við flytjum mjög sennilega á þessu ári. Erum búin að vera að hugleiða að athuga með íbúðakaup og erum svona aðeins að vinna í því máli, en höfum samt sko ekkert ákveðið, enda ekki vitað hvort við höfum efni á því. En í gær þá hringdi sú sem á íbúðina sem við leigjum og tilkynnti okkur að hún væri að skrá hana á sölu. Þannig að það er orðið nokkuð ljóst að við flytjum á þessu ári, bara ekki vitað hvort það verður í eigið húsnæði eða annarra. Þó vona ég heitt og innilega að það verði eigið húsnæði. Samt finnst mér ég gífurlega "fullorðin" að vera farin að hugsa um að kaupa eigin íbúð :oÞ Samt er maður nú orðinn nokkuð "fullorðinn", ég á fósturbarn, bíl, kærasta og hund... hehe við erum sko svona ekta fjölskylda, tjah fyrir utan þá staðreynd að við eigum ekki íbúð/hús. (já og kannski það að við erum ekki gift)

Í dag erum við Teddi heima, hann er lasinn. Var með hita þegar hann vaknaði í morgun :os vona bara að þetta sé ekki "flensan" illræmda. Verst er að hann á að fara til mömmu sinnar á morgun en það er ekki víst að það gangi eftir.
posted by Latur Bloggari @ 10:06  
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home
 
Um mig

Name: Latur Bloggari
Home: Reykjavík, Iceland
About Me:
See my complete profile
Fyrri færslur
Tenglar
Færslusafn
Powered by

15n41n1

BLOGGER