Latur bloggari... ;)
hey ég hef hvort sem er ekki mikið að segja, afhverju að vera þá alltaf blaðrandi
þriðjudagur, apríl 24, 2007
kominn tími á fréttir
Jæja ég stend undir nafni og er löt að blogga. Lífið er að byrja að ganga sinn vanagang og prófstressið er að byrja að gera útaf við mig... samt er maður ekki nógu duglegur við að læra. En þetta reddast allt saman einhvern veginn. :o)
Annars er ég búin að kaupa mér bíl, fjárfesti í 2005 árgerð af Yaris og er alveg svakalega sátt við hann. Er meira að segja búin að fara tvisvar norður, á Akureyri í annað skiptið og Þórshöfn í hitt skiptið. Svakaleg gaman og frelsandi að vera með bíl.
Ræktin gengur ágætlega og námskeiðið sem ég skráði mig á er að klárast, árangurinn er nokkuð góður og ég hlakka til að halda áfram.
posted by Latur Bloggari @ 22:49   0 comments
Um mig

Name: Latur Bloggari
Home: Reykjavík, Iceland
About Me:
See my complete profile
Fyrri færslur
Tenglar
Færslusafn
Powered by

15n41n1

BLOGGER