Latur bloggari... ;)
hey ég hef hvort sem er ekki mikið að segja, afhverju að vera þá alltaf blaðrandi
fimmtudagur, apríl 21, 2005
4 göt á maganum
Jæja þá er aðgerðin búin og ég með 4 göt á maganum og gallblöðrunni fátækari. Tökum hvern dag fyrir sig í kringum aðgerð.

Fimmtudagur 14. apríl


Mætti á spítalann klukkan hálf níu. Þar tók á móti mér hjúkrunarfræðingur sem fékk hjá mér upplýsingar um mig og mitt heilsufar. Svo var ég send í blóðprufu. Svo hitti ég svæfingarlækni og skurðlækninn. Eftir það fór ég í smá læknisskoðun hjá deildarlækni. Síðast en ekki síst fór ég í hjartalínurit. Get sko alveg sagt ykkur það að maður var orðinn soldið stressaður.
Um kvöldið þurfti ég svo að koma upp á spítala og fá blóðþynningarlyf í sprautuformi.

Föstudagur 15. apríl


Vaknaði klukkan 6 og spjallaði aðeins við hana Ölmu Dögg frænku. Fór svo í sturtu og tók eyrnalokkinn minn úr eyranu. Mátti ekki hafa neina skartgripi á mér. Var mætt upp á spítala klukkan hálf 8. Þar var ég send inn á stofu, þar sem ég fór úr mínum fötum og í þennan líka hátísku sjúkrahúsfatnað. Svo lá ég bara þarna og beið þangað til hálf 9 að ég var sótt. Þá var farið með mig í undirbúningsherbergi fyrir aðgerðina. Þar var sett nál í handlegginn á mér og hárnet á hausinn og asnalegir sokkar á fæturnar. Konan sem setti upp nálina hjá mér spurði mig hvort ég væri stressuð og ég jánkaði því. Var eiginlega með tárin í augunum ég var orðin svo hrædd. Hún gaf mér kæruleysislyf í æð og það virkaði nú nokkuð fljótlega. Svo var mér keyrt inn á skurðstofuna og þar færði ég mig sjálf yfir á skurðborðið. Frekar spúkí að sjá allt þetta fólk og öll þessi tæki og tól. Svo var mér gefið súrefni og ég man ekki mikið meira fyrr en ég vaknaði.
Ég vaknaði klukkan 10:50 og var þá á vöknun. Ég vaknaði grátandi, veit samt ekki alveg afhverju ég var að gráta. Þar lá ég í 3 tíma, fyrst með súrefni í nefinu en það var tekið þegar ég bað þær um það, en ég þurfti að vera dugleg að anda. Ég var nefnilega í öndunarvél í aðgerðinni og þurfti þess vegna að vera dugleg við að draga andann djúpt. Svo fékk ég verkjalyf þegar ég bað um þau.
Svo fékk ég að fara niður á stofu og þar beið Tommi með eina rós handa mér. Hann stoppaði reyndar stutt, en það var allt í lagi því ég fór bara að sofa. Mókti fram eftir degi.
Ég fékk kvöldmat þá um kvöldið, en það var ekki gott, mér varð svo flökurt af honum. Svo lá ég bara og horfði á sjónvarpið og dottaði aðeins yfir því. Svo um 11 leitið var ég orðin svöng og bað um að fá eitthvað að borða, ef það væri hægt. Ég fékk ristað brauð með osti og borðaði það með bestu lyst og fann engin óþægindi á eftir.
Ég sofnaði svo um hálf eitt en svaf frekar illa.

Laugardagur 16. apríl


Vaknði snemma við það að ég átti mjög erfitt með að anda. Fékk ógeðslegan verk yfir brjóstkassann og hægri hlutann af líkamanum þegar ég andaði. Hjúkrunarfræðingurinn gaf mér bólgueyðandi í æð og 2 verkjatöflur. Það sló á þetta. Ég skildi ekkert í því að klukkan var orðin 10 og ég ekki farin að fá neitt að borða, þannig að ég spurði þær útí það hvort ég ætti nú ekki að fá morgunmat. Þær voru steinhissa, sögðust hafa pantað fyrir mig morgunmat. En ég virðist hafa gleymst. Því var reddað með cheerios og eplsafa. Svo fékk ég að skella mér í sturtu og vá hvað það var gott. Fljótlega eftir sturtuna fékk ég hádegismat og gat borðað hann án vandræða. Tommi kom um eitt leitið og þá spurði ég þær hvort ég mætti ekki bara fara. Það var ekkert mál og við fórum um hálf 2 og vorum komin heim um hálf 3-3.

Ég var nánast sofandi fyrstu dagana eftir aðgerðina. En svo hef ég verið að hressast og í dag er ég nánast hætt að taka verkjatöflur og er búin að taka plástrana af sárunum. Þetta lítur víst bara ágætlega út. Gallblaðran mín var samt alveg stútfull af steinum og læknirinn sagði það greinilegt að hún hafi bólgnað mikið. Þannig að það var greinilega þörf á þessari aðgerð ;)

posted by Latur Bloggari @ 13:14   0 comments
miðvikudagur, apríl 13, 2005
4ra vikna frí frá vinnu
Þá er ég komin í frí í vinnunni. Vann síðustu næturvaktina í nótt sem leið. Enda var nóttin MJÖG lengi að líða. Í fyrramálið fer ég á spítalann í viðtal við svæfingarlækni og eitthvað fleira. Svo gisti ég hjá Lilju systur aðra nótt því ég þarf að vera mætt á spítalann klukkan 8 á föstudagsmorgun. Aðgerðin á víst ekki að taka nema c.a. 1-2 tíma en ég þarf svo að sofa eina nótt á spítalanum. Úff mér finnst þetta soldið hræðilegt allt saman, hef nefnilega aldrei áður þurft að standa í svona veseni. Þannig að ég er að verða svolítið stressuð fyrir þetta allt saman. En þetta kemur ábyggilega bara til með að ganga vel ;)
Það hittist svo skemmtilega á að þegar ég er búin með þann tíma sem ég á að liggja heima eftir aðgerð byrja prófin hjá mér. Þannig að ég sit heima á launum við að læra undir próf. Ekki allir sem geta státað af því.
posted by Latur Bloggari @ 16:44   0 comments
mánudagur, apríl 11, 2005
næturvaktir, gallblaðra og fleira
Jæja þá er ég búin að vera á næturvöktum í 2 vikur og er maður nú orðinn ansi þreyttur á því. En björtu hliðarnar eru þær að ég á eftir að vinna 2 vaktir og svo fer ég í mánaðar langt frí. Fyrst 10 dagar í veikindafrí eftir aðgerðina og svo í 2 vikur til að ég geti tekið prófin mín í skólanum. Fer í 5 próf ;)
Í gær vaknaði ég við mikinn sársauka í bakinu sem leiddi svo fram, sá fyrir mér hraðferð á spítala og vesen. En eftir að hafa talað við vaktlækni tók ég slatta af íbúfen og sofnaði svo loksins aftur. Svo í gærkvöldi var ég hálf slöpp þannig að ég fékk að fara heim úr vinnunni. Í dag er ég nokkuð góð og er á leiðinni að fara í vinnuna; þó ég nenni því ekki.
posted by Latur Bloggari @ 19:26   0 comments
laugardagur, apríl 02, 2005
fermingaafmæli
úff ég komst að því í dag að ég er að verða gömul ;)
Í dag á ég 10 ára fermingarafmæli, hugsið ykkur 10 ár síðan ég fermdist.
Það fyndna er að ég nota voðalega lítið af því sem ég fékk í gjafir, einna helst nota ég orðabókina mína. Græjurnar mínar eru bilaðar niðri í geymslu og jú ég er með lampa inni í herbergi sem er notaður einstaka sinnum.

Annars er ekki mikið að gerast hér hjá okkur, ég er búin að vera á næturvöktum í síðustu viku, þannig að sólarhringurinn er soldið skrítinn hjá mér þessa dagana.
posted by Latur Bloggari @ 20:51   0 comments
föstudagur, apríl 01, 2005
Aðgerð
Jæja ég fékk símtal frá skurðlækninum sem ég hitti um daginn í gær. Hann tilkynnti mér að hann geti ekki gert aðgerðina vegna þess að tækin á Selfossi eru ekki nógu löng. Þannig að hann sendi mig til Reykjavíkur. Í gær hringdi svo hjúkrunarfræðingur en þar sem ég var sofandi gat ég ekki svarað símann. Ég hringdi í hana í dag og ég á að mæta í aðgerð þann 15. apríl. Þarf að mæta daginn áður í innskrift og undirbúning fyrir aðgerðina.
posted by Latur Bloggari @ 18:19   0 comments
Um mig

Name: Latur Bloggari
Home: Reykjavík, Iceland
About Me:
See my complete profile
Fyrri færslur
Tenglar
Færslusafn
Powered by

15n41n1

BLOGGER