Latur bloggari... ;)
hey ég hef hvort sem er ekki mikið að segja, afhverju að vera þá alltaf blaðrandi
miðvikudagur, nóvember 21, 2007
jæja
Jæja tími kominn á það að skrifa eitthvað hér. Lífið gengur sinn vanagang og er að mestu leiti þannig að maður mætir í vinnu, fer heim, borðar og fer að sofa. Svo svona á milli hangir maður alltof mikið í tölvunni, á sér ekkert líf og tók upp á því að púsla.

Af mér er það að frétta að ég á bara átta og hálfa einingu eftir af háskólanáminu mínu og þar af eru fimm einingar í BA ritgerðinni. Einnig get ég verið mjög ánægð með það að ég er eins og er í fyrstu einkunn. Maður verður bara að vera duglegur og halda henni. Ég er bara í einum kúrs núna og ætla að vera í einum eða tveimur kúrsum í vor, auk þess sem ég skrifa BA ritgerðina þá.

Vinnan mín er að verða skárri og börnin eru mjög skemmtileg, held ég sé bara að standa mig nokkuð vel, svona þó ég segi sjálf frá. Mig langar svolítið að prófa að kenna á framhaldsskólastigi, hugsa að það sé mjög skemmtilegt.

Ræktin og sundið hefur ekki gengið alveg eins vel og ég vonaði, en vigtin hefur þó staðið í stað og er ég bara mjög ánægð með það.

Ég fer suður á föstudaginn og aftur heim á mánudaginn, mikið svakalega verður það gaman. Dauðlangar að fara í bíó, keilu, pool, á kaffihús, í leikhús, í sund og að gera svakalega margt annað. Ef þið hafið áhuga þá megið þið endilega hafa samband við mig.

Bæjó spæjó
posted by Latur Bloggari @ 21:49   3 comments
Um mig

Name: Latur Bloggari
Home: Reykjavík, Iceland
About Me:
See my complete profile
Fyrri færslur
Tenglar
Færslusafn
Powered by

15n41n1

BLOGGER