Latur bloggari... ;)
hey ég hef hvort sem er ekki mikið að segja, afhverju að vera þá alltaf blaðrandi
laugardagur, september 24, 2005
Ég var víst klukkuð
Jæja fimm hlutir um mig.

1. Ég er sannkallaður hrakfallabálkur.

2. Ég á 2 gæludýr.

3. Ég er á öðru ári í ensku í HÍ og stefni svo á MLIS gráðu í bókmennta og upplýsingafræði þegar það er búið.

4. Ég hef átt heima í 5 bæjarfélögum á ævinni og verið í 4 grunnskólum, 1 menntaskóla og 1 háskóla.

5. Ég er yngst af systkinunum.

Jæja ég klukka Birtu, Mæju, Daðey, Jónínu og Ölmu Dögg.
posted by Latur Bloggari @ 09:38   0 comments
miðvikudagur, september 07, 2005
Hellings breytingar
Jæja þá er ég flutt í bæinn, byrjuð í skólanum og byrjuð að vinna aftur á póstinum.

Við fluttum fyrir 1 og hálfri viku og vá hvað ég var búin að gleyma því hve leiðinlegt er að flytja. Maður á alltof mikið af drasli. Eigum aðallega eftir að ganga frá svona alls konar smádrasli og bókum. Við eigum ekki nógu stóra bókahillu fyrir allar bækurnar okkar.

Skólinn byrjaði á mánudaginn og mér líst bara nokkuð vel á þetta. Svo í dag var ég nokkurn veginn að ákveða að fara í MLIS nám í bókasafns og upplýsingafræði þegar ég er búin í enskunni. Það þýðir að vísu að ég þarf að taka 12 einingar í aðferðarfræði með enskunni, en ég held að það sleppi alveg.

Ég fór upp á póstmiðstöð á þriðjudaginn fyrir viku til að athuga hvort ég gæti fengið kvöldvinnu hjá þeim aðra hvora viku, var ráðin á staðnum og mætti strax um kvöldið í vinnu. Svo gaf ég þeim leyfi til að hringja í mig eftir hádegi á mánudögum og þriðjudögum og svo á fimmtudagsmorgnum ef það vantar bílstjóra. þeir eru strax farnir að nýta sér það.

Síðustu helgi var meira en nóg að gera hjá mér, á föstudaginn hefði Kjartan afi orðið 85 ára. Á laugardaginn gifti frænka mín sig. Á sunnudaginn var haldið upp á 10 ára afmæli hennar Alexöndru og líka kaffiboð til að minnast þess að Haddi afi hefði orðið 80 ára á mánudeginum. Ekki megrunarvæn helgi það ;)

Ég setti niður markmið um daginn:
1. september 2006 ætla ég að vera 50 kílóum léttari en ég er í dag.
Ef ég næ markmiðinu, þá fæ ég að kaupa mér fartölvu :D
posted by Latur Bloggari @ 20:06   0 comments
Um mig

Name: Latur Bloggari
Home: Reykjavík, Iceland
About Me:
See my complete profile
Fyrri færslur
Tenglar
Færslusafn
Powered by

15n41n1

BLOGGER