Latur bloggari... ;)
hey ég hef hvort sem er ekki mikið að segja, afhverju að vera þá alltaf blaðrandi
miðvikudagur, nóvember 30, 2005
Vigtin þessa vikuna
Jæja ég veit ég átti að uppfæra á mánudaginn, en vigtin í World class var biluð þannig að ég fékk enga tölu þá. Þannig að ég set inn töluna sem ég fékk í dag.
posted by Latur Bloggari @ 09:29   0 comments
sunnudagur, nóvember 27, 2005
Fækkun í fjölskyldunni
Jæja þá fækkaði um einn í fjölskyldunni. Hann Hnoðri er dáinn. Eftir langa baráttu við erfiða eigendur dó hann í gær/nótt. Hann náði sér aldrei eftir að hafa orðið óvart eftir í Þorlákshöfn í 6 daga.
posted by Latur Bloggari @ 13:29   0 comments
föstudagur, nóvember 25, 2005
vigtun
Jæja þá var verið að vikta okkur á námskeiðinu. Síðan 31. okt hef ég misst 2,3 kíló, 4% í fitu og 2 cm af mittinu :D

Er bara nokkuð ánægð með það :D

Mér tókst samt að tjóna mig smá í tímanum áðan, var að hoppa eitthvað og það small eitthvað í hnéinu mínu. Ég get alveg gengið og allt það en ef ég gleymi mér og rétti alveg úr fætinum þá meiði ég mig. Vonandi jafnar þetta sig á helginni.
posted by Latur Bloggari @ 09:42   0 comments
mánudagur, nóvember 21, 2005
Kemst þó hægt fari
Jæja ég mjakast enn í átt að markmiðinu mínu... en það gengur samt ekki alveg eins vel og ég vildi. Nú er bara að taka á honum stóra sínum og rífa sig upp á rassgatinu og breyta mataræðinu. Það þýðir ekkert minna en það.
posted by Latur Bloggari @ 09:20   0 comments
mánudagur, nóvember 07, 2005
Uppfærsla
Jæja þá er ég búin að fara í 3 tíma í námskeiðinu mínu og gera mig að algeru fífli :p Eróbikk er ekki alltaf sammála mér :p

Hmmm... vigtin er ekki alveg upp á sitt besta en maður verður bara að taka sig á. Á morgun er fyrirlestur hjá næringarráðgjafa og er ég að vona að maður læri eitthvað af honum. Sérstaklega því ég þarf að taka mér frí í vinnu til að fara á hann :s

Svo eru sorgarfréttir, hún Dögg tíkin hans pabba er dáin. Hún varð lasin og það þurfti því miður að svæfa hana. Það ríkir mikil sorg í fjölskyldunni því þetta var einn besti hundur sem við höfum haft í kringum okkur.
posted by Latur Bloggari @ 23:41   0 comments
Um mig

Name: Latur Bloggari
Home: Reykjavík, Iceland
About Me:
See my complete profile
Fyrri færslur
Tenglar
Færslusafn
Powered by

15n41n1

BLOGGER