Latur bloggari... ;)
hey ég hef hvort sem er ekki mikið að segja, afhverju að vera þá alltaf blaðrandi
mánudagur, mars 12, 2007
strengir dauðans
Úff það er erfitt að byrja aftur í ræktinni... sé fram á að vera með strengi næstu vikurnar. Maður tapar svakalegu þoli svona með því að hætta að mæta í ræktina. En ég hef fulla trú á því að ég verði fljót að vinna það upp. Námskeiðið leggst ágætlega í mig... gott að taka svona ársfrí og þá er maður ekki eins þreyttur á því að vera alltaf að gera sömu hlutina. Hef aðeins verið að hugsa málið með það hvað ég geri þegar þetta námskeið er búið og er að verða búin að komast að þeirri niðurstöðu að taka jafnvel bara annað námskeið strax í framhaldinu.

Helgin sem var að líða var bara nokkuð skemmtileg og viðburðarrík. Allt frá því að fara á hokkíleik í það að þurfa að hugsa um drukkið fólk svo það komist heim til sín. Ekkert alltof mikill svefn þó, en það reddast, tókst að vakna í morgun til að fara í ræktina. Og það segir sko alveg heilan helling sko.
posted by Latur Bloggari @ 16:58   0 comments
þriðjudagur, mars 06, 2007
Tími til kominn
Jæja ætli það sé ekki best að gefa smá uppfærslu á þetta. Ég er ekki lengur veik... var ekki veik lengi, þannig að ég verð að segja að ég var nú bara nokkuð heppin svona miðað við hvað maður er að heyra í kringum sig.
Ég er flutt í íbúðina sem ég er að leigja, en er ekki alveg að nenna að koma hlutunum mínum fyrir... þetta er bara eitt það leiðinlegasta sem ég geri. Hef flutt of oft um ævina og vona að ég þurfi ekki að flytja mikið oftar. Ég sé ekki fram á að klára að koma mér fyrir alveg strax, er að fara í próf á fimmtudaginn og morgundagurinn fer allur í það að læra. Svo er ég að vinna á föstudag og laugardag... þannig að ég veit nú sko ekki alveg hvenær ég á að finna tímann.
Í öðrum fréttum, þá fór ég og skráði mig á námskeið í world class... næstu átta vikurnar verða teknar af mikilli hörku og ég hlakka til að fara að koma mér aftur af stað og snúa við vigtinni aftur. Svakalega fúlt þegar maður er búinn að vera duglegur í ræktinni, hættir svo og fitnar ógeðslega mikið aftur.
Skólinn er ekki alveg að ganga upp þessa dagana... þarf að rífa mig upp í dugnaðinn og setja upp gott plan fram að prófum, það er alltof stutt í þau. Ef allt gengur vel þá er þetta síðasta próftíðin mín í bili og það verður svakalega notalegt.
posted by Latur Bloggari @ 22:41   2 comments
Um mig

Name: Latur Bloggari
Home: Reykjavík, Iceland
About Me:
See my complete profile
Fyrri færslur
Tenglar
Færslusafn
Powered by

15n41n1

BLOGGER