Latur bloggari... ;)
hey ég hef hvort sem er ekki mikið að segja, afhverju að vera þá alltaf blaðrandi
laugardagur, maí 27, 2006
alltaf jafn dugleg ;)
hehe ok ég veit að ég er ekki búin að uppfæra tölur, en þetta hefur gengið illa... kemst allt í lag þegar ég er flutt, þá verður ræktin alveg komin inn í prógramið.

Við erum að fá íbúðina afhenta á morgun og ég get sko eiginlega ekki beðið... vill helst sko flytja í gær ;) en við þurfum að mála áður en við flytjum þannig að ætli flutningar verði ekki eftir ca. 2 vikur! Eða það segir Tommi. Helst vildi ég bara drífa í þessu og flytja næstu helgi ;)

Vinnan mín er fín, er þó enn að venjast því að fá hrós fyrir vel unnin störf... maður er ekkert vanur að fá "feedback" frá yfirmönnum, tjah nema þá helst þegar maður gerir eitthvað vitlaust... en núna er ég sko búin að fá að heyra hvað ég er dugleg og fljót að læra :oD ég veit ég er að monta mig... en það er bara gaman ;)

Svo eru einkunnirnar að skila sér inn... er komin með eitt fjarverandi (en ég mætti ekki í prófið) og eina sjöu. Ég er skráð í eitt sumarpróf, en ég hugsa að ég sleppi því og sitji frekar kúrsinn aftur á næsta ári. Ég klúðraði honum aðallega með því að mæta ekki í fyrirlestra, en komst svo að því seinna að kennarinn er alger snillingur. Svo sá ég það um daginn að hann á að kenna þetta aftur í haust og ég hugsa að það sé alveg þess virði að fara aftur í kúrsinn... þó það kosti mig það að vera í 20 einingum á haustönn. Svo var ég búin að ákveða að sitja bókmenntagreininguna (þar sem ég fékk fjarverandi) aftur næsta vor... þannig að ég verð líka í 20 einingum þá. Þetta verður stór vetur, tala nú ekki um líka því ég þarf að vinna eitthvað smá með skólanum líka. En ég hef fulla trú á mér... veit að ég get þetta alveg :)
posted by Latur Bloggari @ 12:21   0 comments
þriðjudagur, maí 09, 2006
Nóg að gera
Jæja það er sko nóg að gera hjá mér þessa dagana. Er búin að vinna 4 daga frá 13-17 í sumarvinnunni, já ég veit að ég er í prófum, en ég ákvað samt að byrja að vinna svona. Svo byrja ég af fullum krafti þar á mánudaginn næsta. Lítur rosalega vel út og fólkið sem á búðina virðist vera alveg meiriháttar. Hef fulla trú á því að þetta verði gott sumar.
Af íbúðarmálum er lítið að frétta, erum eiginlega bara að bíða eftir því að heyra frá kallinum, hvort hann fari eitthvað fyrr útúr íbúðinni eða ekki. Vonum það besta, væri sko meiriháttar að geta flutt bara strax um mánaðarmótin. Annars erum við öll að deyja úr spenningi yfir þessu öllu saman.
Af skólanum er það að frétta að ég er búin að fara í eitt próf, búin að sleppa einu prófi og á tvö próf eftir. Er einhvern veginn að hafa of litlar áhyggjur af þessu öllu saman og þar afleiðandi kem ég til með að taka þokkalegt stresskast einhvern tímann í vikunni!
Jæja ætlaði bara að koma með nýjar fréttir og nýja tölu. Nú er hins vegar komið að því að halda áfram að læra ;)
posted by Latur Bloggari @ 10:57   0 comments
mánudagur, maí 01, 2006
Nýjar tölur, nýtt upphaf
Jæja þá er það komið í ljós að ég þyngdist um fimm kíló aftur :S.
Ég set nýtt upphaf... 112 kíló í byrjun, enn 7 kílóum léttari en í haust :D
Núna er bara að keyra allt af stað og byrja aftur á fullu.

Annars á ég að vera að skrifa ritgerð frekar en að vera að spá þessu öllu. Maður finnur sér alltaf eitthvað annað að gera þegar maður á að vera að læra.
posted by Latur Bloggari @ 13:31   0 comments
Um mig

Name: Latur Bloggari
Home: Reykjavík, Iceland
About Me:
See my complete profile
Fyrri færslur
Tenglar
Færslusafn
Powered by

15n41n1

BLOGGER