Latur bloggari... ;)
hey ég hef hvort sem er ekki mikið að segja, afhverju að vera þá alltaf blaðrandi
sunnudagur, nóvember 30, 2008
Verðlaun
Hey ég fékk verðlaun í vinnunni fyrir að vera Gleðigjafinn í Kringlunni í átakinu. Krakkarnir í vinnunni kosu um það og átti að það að vera jákvæðasti einstaklingurinn sem var duglegur að hvetja hina áfram.

Ég fékk 15 þúsund króna miðborgar gjafakort sem ég ætla að nýta í eitthvað skemmtilegt.
posted by Latur Bloggari @ 10:45   0 comments
föstudagur, nóvember 28, 2008
Föstudagur og mánuðurinn senn á enda
Vá hvað þetta ár er búið að vera alltof fljótt að líða, það er desember handan við hornið og svo nýtt ár. Það góða við desember er samt það að maður hefur nóg að gera og ætti að fá fína útborgun í janúar. Það verður gaman að vinna í jólavertíðinni, mér finnst reyndar alltaf gaman að vinna i öllum vertíðum. Það er alltaf skemmtilegur blær á öllu.

Ég var heima í dag með kvef og lekandi auga. Ákvað að það væri betra að slappa af og reyna að ná þessu úr mér frekar en að vera að sjúga upp í nefið og þerra augað á meðan ég afgreiði viðskiptavini. Var húsmóðurleg og skúraði og er að elda fyrir mömmu og pabba núna. Skellti í eina pizzu og hlakka til að borða hana.

Í gær var mæling í vinnunni, vorum að ljúka 10 vikna átaki. Hefði mátt ganga betur hjá mér en afrekaði að losna við 6 cm og 1,9 kíló. Stefni á að fá einhvern með mér í keppni eftir áramót, skella einhverju í pott og keppast. Mjög gaman að hafa áskorun. Þó hún hafi kannski ekki virkað nógu vel þarna í vinnunni. Held það hafi verið of langur tími í þessu.

En ég get verið þakklát fyrir það að ég er 10 kg léttari en ég var um páska og í mikið betra formi. Ég er á beinu brautinni þó hægt fari.
posted by Latur Bloggari @ 18:43   2 comments
miðvikudagur, nóvember 26, 2008
dugnaður
Jæja ætla að ganga endanlega fram af þér Daðey mín og blogga aftur. Sit hérna í vinnuni og búin að afhenda slatta af miðum á eldhúspartý fm957. Svakalega gaman það.

Á morgun lýkur (líkur, lýkur, líkur, omg held ég þurfi að læra íslensku upp á nýtt) heilsuátakinu í vinnunni og því er nú ver og miður þá held ég að ég fái engin verðlaun né viðurkenningu fyrir minn árangur. Hins vegar get ég stolt sagt það að ég er í 2. sæti yfir mætingar hér í minni verslun. Þannig að þetta er ekki alslæmt.
Tala nú ekki um ef tekið er inn í þetta að ég er farin að geta skokkað á hlaupabrettinu, fer yfirleitt rúmlega 2 km á 20 mín og fyrir 122 kílóa skrokk held ég það sé bara fínt.

Annars er ekkert að frétta, er bara að vinna og vinna meira og þess á milli í ræktinni.
posted by Latur Bloggari @ 18:17   1 comments
laugardagur, nóvember 22, 2008
bleah
Hmmm kannski maður ætti nú að fara að vera duglegur og reyna að blogga eitthvað. Maður er einhvern veginn aldrei í stuði til að tjá sig. Hjá mér er allt við það sama, vinna og rækt í nokkuð góðum gír og stefnan tekin á gott mataræði. Hef fulla trú á því að ég sé á réttri leið með allt þetta hjá mér.

Kreppan er staðreynd sem maður getur ekki komist hjá en maður gerir sitt besta í að gleyma. Það er ekkert gaman að vera í þessari neikvæðni endalaust. Hvernig væri að fólk færi að sjá hvað það hefur það í raun gott miðað við svakalega marga. Við höfum flest þak yfir höfuðið, mat á borðum, föt, bíla, sjónvörp, tölvur og allt hvað eina sem mann langar. Hins vegar þarf fólk að huga að því að draga saman seglin og hætta að eyða í vitleysu. Nota peningana í nauðsynjar frekar en að lifa flottu líferni. Ég get svosem ekki mikið sagt, með allt niður um mig fjárhagslega séð. En hef ákveðið að horfa björtum augum fram á veginn og taka Pollýönnu á þetta... þetta reddast allt saman einhvern veginn.
posted by Latur Bloggari @ 22:02   2 comments
Um mig

Name: Latur Bloggari
Home: Reykjavík, Iceland
About Me:
See my complete profile
Fyrri færslur
Tenglar
Færslusafn
Powered by

15n41n1

BLOGGER