Latur bloggari... ;)
hey ég hef hvort sem er ekki mikið að segja, afhverju að vera þá alltaf blaðrandi
miðvikudagur, janúar 31, 2007
síðasta einkunnin komin í hús
Jæja þá er síðasti sauðurinn kominn í hús, fékk 7 í enskum mállýskum og endaði því með 15 einingar af 20 og meðaleinkunnin í þessum 15 var 7,6 en ef ég tel einingarnar í tolkien með þá var ég með meðaleinkunn 5,7. Líst betur á þessa fyrri sko ;)
Skólinn lítur vel út og ég er nokkuð sátt við kúrsana sem ég er í á þessari önn, að vísu kem ég til með að missa af nokkrum fyrirlestrum þar sem ég var góðhjörtuð og bauð vinnuveitandanum að vinna alltaf mánudag og miðvikudaga til skiptis og vinn svo alla föstudaga og annan hvern laugardag. Þannig að aðra hverja viku vinn ég mán, fös, lau og hina vikuna mið og fös. og þegar ég vinn á mán og mið er ég að vinna 12-18 en fös 10-18 og lau 10-16. Ég hef hugsað mér að nota morgnanna í að læra og hef nú verið nokkuð dugleg í því, svona þó ég segi sjálf frá ;)
Í gær var ég ofur dugleg og labbaði í skólann, það tók mig alveg hálftíma og ég svitnaði nú alveg ágætlega við það... ekkert smá ánægð með mig og aldrei að vita nema leikurinn verði endurtekinn fljótlega.
posted by Latur Bloggari @ 07:33   0 comments
fimmtudagur, janúar 18, 2007
afsökunarbeiðni
Hér með vill ég biðja fólk afsökunar á jólakortaleysi síðustu 2ja ára... lofa að bæta úr því næst ;) Það er alveg djöfulegt að vera á kafi í prófstressi sem rennur út í það að verða prófstress... maður getur aldrei gert eins mikið og maður hefði viljað. En ég sé fram á það að vera ekki í skóla fyrir jólin næst svo að það verður bara jólastressið í það skiptið ;o)
posted by Latur Bloggari @ 22:35   0 comments
mánudagur, janúar 08, 2007
ársuppgjör
Jæja þá er enn eitt árið byrjað og ætli maður ætti ekki að reyna að gera upp gamla árið. Reyndar er minnið mitt ekki alltaf upp á marga fiska svo að ég er nú ekki alveg alltaf að muna allt sem er merkilegt. Ætli það sé ekki best að gera þetta í punkaformi.

- keypti mína fyrstu íbúð
- byrjaði í frábærri vinnu hjá frábæru fólki
- fór í eina útilegu í húsafell, kíkti niður í einn helli í leiðinni og mikið
rosalega var það gaman og flott að sjá.
- Teddi byrjaði í skóla og svakaleg spenna sem fylgdi því
- var svaka dugleg í líkamsræktinni í byrjun árs, en svo fór að halla undan fæti og
ég verð að taka mig svakalega á á þessu ári.

Hehe eins og áður sagði þá er minnið kannski ekki upp á marga fiska og þetta kannski ekki merkilegir hlutir í annarra augum, en þetta er það sem ég man og virðist standa uppúr ;)

Núna er ég bara að bíða eftir síðustu einkunninni minni, gekk ágætlega, búin að fá 4 einkunnir og þar af var eitt fall. En það get ég lagað með því að skrifa eitt stykki ritgerð í sumar. En ég var nú nokkurn veginn búin að ákveða það fyrirfram að skrifa ba ritgerðina mína í sumar og útskrifast þá í október í stað þess að útskrifast í júní. Hinar einkunnirnar voru sæmilegar, ein 6,5, ein 8 og ein 9. Núna bíð ég spennt eftir því að skólinn byrji og ætla bara að vera í 15 einingum og vinna einn dag í viku og annan hvern laugardag. Þannig að ef ég klúðra einhverju í skólanum á vorönninni þá verð ég að dæmast aumingi.
posted by Latur Bloggari @ 14:20   0 comments
Um mig

Name: Latur Bloggari
Home: Reykjavík, Iceland
About Me:
See my complete profile
Fyrri færslur
Tenglar
Færslusafn
Powered by

15n41n1

BLOGGER