Latur bloggari... ;)
hey ég hef hvort sem er ekki mikið að segja, afhverju að vera þá alltaf blaðrandi
föstudagur, apríl 28, 2006
jíha
Jæja þá er allt að lagast aftur... ég er búin að skrifa undir kaupsamning og flyt í júní. Fyrsta íbúðin sem ég kaupi :D og ekki nóg með það að sama dag og kaupsamningur var undirritaður, þá fékk ég sumarvinnu. Vá hvað það var meiriháttar... enda er stressið smám saman að líða úr manni... bara eftir að stressa sig yfir prófunum, en ótrúlegt en satt, þá er ég voðalega lítið stressuð. Reyndar í vandræðum með að stilla mig yfir í prófgírinn. En það hefst vonandi.

Aðrar fréttir eru þær að ég fæ nýtt líkamsræktarkort á næstu dögum... þá ætla ég að birta nýjar tölur og núlla mælinn hérna uppi. Veit það er kannski asnalegt hjá mér, en ég ætla bara að byrja upp á nýtt, nýtt upphaf. Ég veit líka að ég er búin að þyngjast síðasta mánuðinn, verður ábyggilega erfitt að stíga á vigtina, en það er skref sem ég verð að taka.

Læt ykkur vita þegar ég er búin að taka það stóra skref :P
posted by Latur Bloggari @ 16:23   0 comments
miðvikudagur, apríl 19, 2006
Tími til kominn
Úff langt síðan síðast, hér hefur mikið gengið á. Lífið hefur verið rússibani dauðans. Erum í því ferli að kaupa íbúð og það hefur gengið upp og ofan, en eins og staðan er núna lítur allt út fyrir það að við flytjum í okkar eigin íbúð í júní. En vegna alls stressins í kringum þetta, þá hef ég ekki verið svakalega dugleg í ræktinni, auk þess sem ég á ekki lengur líkamsræktarkort. Er að reyna að ákveða í hvaða líkamsæktarstöð ég á að fara.
Svo er að aukast stressið útaf skólanum, er í prófum í maí. Hef ákveðið að fara ekki í eitt próf og taka kúrsinn aftur næsta vetur. Ætla þá að bæta hugarfarið gagnvart kúrsinum. Ætla að bæta upp fyrir það að hafa hugsað mjög neikvætt í garð þessa kúrs og kennara í vetur.
Svo er ég búin að fara í eitt atvinnuviðtal og á leiðinni í annað í dag. Vona bara að það gangi vel og ég fái vinnu, svo ég þurfi ekki að hafa áhyggjur af vinnu mikið lengur. Hef nógu miklar áhyggjur nú þegar.
posted by Latur Bloggari @ 08:49   0 comments
Um mig

Name: Latur Bloggari
Home: Reykjavík, Iceland
About Me:
See my complete profile
Fyrri færslur
Tenglar
Færslusafn
Powered by

15n41n1

BLOGGER