Latur bloggari... ;)
hey ég hef hvort sem er ekki mikið að segja, afhverju að vera þá alltaf blaðrandi
föstudagur, febrúar 06, 2009
Bíóferðir
Ótrúlegt en satt þá er ég búin að fara tvisvar í bíó á stuttum tíma. Í fyrra skiptið fékk ég boðsmiða á My Bloody Valentine og fór á hana á fimmtudaginn síðasta.
Myndin var ágætis afþreying og nokkur flott atriði sem voru hálf ógeðfelld. En hins vegar var söguþráðurinn nokkuð gegnsær og maður fljótur að finna út hver fléttan var.

Svo fór ég á Slumdog Millionaire í gær og hún var mjög góð. Hins vegar skil ég ekki þessa áráttu kvikmyndaframleiðanda að þurfa alltaf að breyta söguþræðinum... sérstaklega þegar söguþráðurinn er bara nokkuð góður fyrir.
posted by Latur Bloggari @ 13:13   0 comments
miðvikudagur, febrúar 04, 2009
Allt gott hér
þessa dagana er ég föst í einhverri brjálaðri jákvæðnisbylgju. Er hress og kát nánast á hverjum degi. Get horft í spegilinn og verið bara nokkuð sátt við það sem ég sé. Fór í myndatöku og fékk eiginlega bara flottar andlitsmyndir af mér... er lífið virkilega svona þegar manni líður nokkuð vel?
Ég er byrjuð aftur í ræktinni og ætla að taka á honum stóra mínum og breyta um lífstílinn þannig að ég detti helst aldrei aftur í að vera neikvæða ég. Mikið meira gaman að vera jákvæður og sáttur við sig.
posted by Latur Bloggari @ 14:47   0 comments
Um mig

Name: Latur Bloggari
Home: Reykjavík, Iceland
About Me:
See my complete profile
Fyrri færslur
Tenglar
Færslusafn
Powered by

15n41n1

BLOGGER