Latur bloggari... ;)
hey ég hef hvort sem er ekki mikið að segja, afhverju að vera þá alltaf blaðrandi
mánudagur, júní 09, 2008
Breytingar
Jæja þá er ég búin í vinnunni fyrir norðan og byrjuð í annarri í Reykjavík. Er reyndar bara búin að mæta 2 daga en þetta lofar góðu og hlakka ég til að vera komin alveg inn í starfið. Ég hef ekkert verið að stressa mig yfir því að vera að koma í nýja vinnu og þessvegna allt gengið nokkuð vel. Við vorum þó ekki svo heppin að vera búin að fá nýju íbúðina áður en við fluttum og því er ég í gistingu hjá bróður mínum. En það stendur til að fá íbúðina afhenta þann 20. júní. Frekar pirrandi þegar maður er búinn að gera sér vonir um hlutina og svo ganga þær ekki upp.
Ég fer í Hveragerði á laugardaginn, en þá er fyrirlestur og mæling fyrir okkur og svo höfum við aðgang að öllu þar á meðan það er opið. Ég hlakka til að fara þó ég sé nú kannski ekki voðalega bjartsýn á að fá góðar niðurstöður. Hefur gengið frekar illa að halda sig við efnið þegar maður er í svona hálfgerðu millibilsástandi. Ég er þó búin að kaupa mér kort í ræktina og ætla að vera dugleg. En sé þó ekki fram á mikil afrek þessa viku þar sem mér tókst að sparka allsvakalega fast í stól í morgun og er með fjólubláa tá fyrir vikið. Kannski maður prófi bara að synda í staðinn.
posted by Latur Bloggari @ 21:27   1 comments
Um mig

Name: Latur Bloggari
Home: Reykjavík, Iceland
About Me:
See my complete profile
Fyrri færslur
Tenglar
Færslusafn
Powered by

15n41n1

BLOGGER