Latur bloggari... ;)
hey ég hef hvort sem er ekki mikið að segja, afhverju að vera þá alltaf blaðrandi
þriðjudagur, september 12, 2006
Skólinn byrjaður
Mikið var nú skrítið að upplifa það að langa bæði að vera í vinnunni áfram og fara í skólann. Erfitt að segja bless við vinnuna... sem betur fer er ég að vinna 2 daga í viku og annan hvern laugardag. Hef aldrei upplifað það að vera í vinnu sem ég vill ekki hætta í þegar skólinn er að byrja. Maður er vanari því að vera búinn að fá ógeð á vinnunni þegar enn er mánuður í skólann.

Skólinn lítur mjög vel út og ég er mjög spennt fyrir vetrinum. Held að ég sé svei mér þá í 5 skemmtilegum kúrsum, vísu eru það 20 einingar, en ég ætti að ráða við það :o) Ég er nú svoddan dugnaðarforkur :op

Líkamsræktin er að fara af stað og byrjunartakmarkið að mæta þrisvar í viku og vera duglegur að koma sér í betra form.
posted by Latur Bloggari @ 19:39   0 comments
Um mig

Name: Latur Bloggari
Home: Reykjavík, Iceland
About Me:
See my complete profile
Fyrri færslur
Tenglar
Færslusafn
Powered by

15n41n1

BLOGGER