Latur bloggari... ;)
hey ég hef hvort sem er ekki mikið að segja, afhverju að vera þá alltaf blaðrandi
mánudagur, maí 30, 2005
viðburðarík helgi
Þessi helgi var bæði yndisleg og líka svolítið erfið.

Á laugardaginn gifti Lilja systir sig í Háteigskirkju. Þetta var yndisleg athöfn og voru þau bæði mjög sæt og fín. Einnig voru krakkarnir alveg æðislega fínir og rosalega dugleg að vera góð í kirkjunni. Svo kom flottur hvítur Cadillac að sækja þau og var blæjan meira að segja niðri.
Veislan var svo haldin í Glaðheimum og heppnaðist mjög vel. Mjög góður matur frá Dóra frænda og allt alveg meiriháttar. Enda töluðu allir um það hve frábært allt var og að þetta væri yndislegur dagur.

Á föstudaginn hringdi hann Einar Ingi í mig með þær fréttir að hann Skarpi hefði látist í bílslysi. En hann vann með mér á póstinum og í ca. mánuð vorum við meira en vinir. En höfum ekki talað mikið saman eftir það. Við áttum eftir margt ósagt, kannski ég meira en hann. En nú get ég það ekki... þó ég hafi ekki haft mikið samband við hann í 2 ár þá finnst mér mjög sárt að horfa á eftir honum. Skarpi, þú varst yndislegur, góður og traustur vinur vina þinna. Allir sem þekktu þig áttu það mjög gott. Það var heiður að njóta þessara stunda með þér, hafðu það gott.
posted by Latur Bloggari @ 20:39   0 comments
miðvikudagur, maí 18, 2005
Prófin búin
Jæja þá eru prófin búin og húsmæðraorlofið á Akureyri er líka búið. Svo er ég meira að segja búin að fá 2 einkunnir, var með 6.5 í Bandarískri menningarsögu og 7.5 í Enskri málsögu. Ég er nú bara ágætlega sátt við þær.

Akureyrarferðin var alveg ágæt, margt brallað og miklum peningum eytt :S en það er nú ekki eins og ég sé að eyða peningum oft ;) Ég fann dress fyrir brúðkaupið hennar Lilju systur, en það er 28. maí. Hlakka mikið til.

Í gær byrjaði ég að vinna aftur eftir mánaðar frí, það var sko ekki gaman, er alls ekki að nenna að vinna þarna :( en maður getur víst ekki alltaf gert bara skemmtilega hluti.

Annars er ekkert mikið að frétta, ætla bara að nýta tækifærið og þakka Mæju aftur fyrir helgina.
posted by Latur Bloggari @ 21:07   0 comments
mánudagur, maí 09, 2005
Próf
Jæja þá eru prófin eiginlega alveg að verða búin. Ég á eftir að fara í eitt próf, en þarf svo að vísu að taka allavegana 2 í ágúst. Ég held ég sé búin að ná þeim 2 sem ég er búin að fara í og að ég hafi ekki klúðrað verkefna áfanganum, þannig að ég held að ég standi bara ágætlega að vígi. Síðasta prófið er á miðvikudaginn.

Á fimmtudaginn ætla ég að fara norður á Akureyri að heimsækja Mæju og Daðey. Kem svo sennilega ekki heim fyrr en á mánudaginn. Það er nefnilega frídagur ;) Þannig að ég byrja ekki að vinna fyrr en á þriðjudaginn og þá passar það akkúrat að ég verð búin að vera í mánuð frá vinnu. En vá hvað ég er ekki að nenna að vinna í Portlandi í sumar, vildi óska að ég gæti fengið aðra vinnu, en það er víst ekki mikið um eitthvað annað en frystihús hér í Þorlákshöfn.

Síðasta laugardag var Lilja systir gæsuð, það var ógeðslega gaman ;) enduðum á sálinni á nasa, vá hvað það var troðið þar inni. Þú gast varla snúið þér við án þess að rekast á einhvern. Það fáránlegasta er þó að það eru einungis 3 kvennaklósett og 4 karlaklósett á staðnum. Mér er bara spurn, hvernig tókst þeim að fá leyfi fyrir staðnum með ónóga hreinlætisaðstöðu?
posted by Latur Bloggari @ 19:32   0 comments
Um mig

Name: Latur Bloggari
Home: Reykjavík, Iceland
About Me:
See my complete profile
Fyrri færslur
Tenglar
Færslusafn
Powered by

15n41n1

BLOGGER