Latur bloggari... ;)
hey ég hef hvort sem er ekki mikið að segja, afhverju að vera þá alltaf blaðrandi
mánudagur, mars 17, 2008
Hveragerði
Jæja þá er komin dagsetning á Hveragerði og ég á að mæta þar 24. mars eða annan í páskum. Þar er ég að fara í meðferð vegna offitu... http://www.hnlfi.is/Default.asp?Page=37 ... hægt að lesa um það inni á þessum tengli.
Ég fór til læknist og bað um að fá beiðni til að fara þangað og fékk hana strax og komst inn í fyrsta hóp eftir að ég fékk beiðnina. Þannig að næstu 4 vikur fara í það að taka vel á því og losa sig við kílóin.
Svo fer ég aftur norður og klára að kenna veturinn og við flytjum svo suður í júní. sumarvinnan er ekki komin á hreint en ætti að koma í ljós fljótlega.
posted by Latur Bloggari @ 21:11   0 comments
þriðjudagur, mars 04, 2008
ætli það séu ekki allir búnir að gefast upp á mér
Stutt færsla núna...
- ég er á lífi.
- ég er á Þórshöfn.
- ég flyt í vor.
- ég er að fara í Hveragerði (nánari dagsetning ekki komin enn).
- ég er ekki að gera góða hluti í skólanum (þ.e. HÍ)
- en ég er samt nokkuð hress bara.

Lengri og innihaldsríkari færsla kemur vonandi sem fyrst.
posted by Latur Bloggari @ 08:28   1 comments
Um mig

Name: Latur Bloggari
Home: Reykjavík, Iceland
About Me:
See my complete profile
Fyrri færslur
Tenglar
Færslusafn
Powered by

15n41n1

BLOGGER