miðvikudagur, nóvember 30, 2005 |
Vigtin þessa vikuna |
Jæja ég veit ég átti að uppfæra á mánudaginn, en vigtin í World class var biluð þannig að ég fékk enga tölu þá. Þannig að ég set inn töluna sem ég fékk í dag. |
posted by Latur Bloggari @ 09:29 |
|
|
sunnudagur, nóvember 27, 2005 |
Fækkun í fjölskyldunni |
Jæja þá fækkaði um einn í fjölskyldunni. Hann Hnoðri er dáinn. Eftir langa baráttu við erfiða eigendur dó hann í gær/nótt. Hann náði sér aldrei eftir að hafa orðið óvart eftir í Þorlákshöfn í 6 daga. |
posted by Latur Bloggari @ 13:29 |
|
|
föstudagur, nóvember 25, 2005 |
vigtun |
Jæja þá var verið að vikta okkur á námskeiðinu. Síðan 31. okt hef ég misst 2,3 kíló, 4% í fitu og 2 cm af mittinu :D
Er bara nokkuð ánægð með það :D
Mér tókst samt að tjóna mig smá í tímanum áðan, var að hoppa eitthvað og það small eitthvað í hnéinu mínu. Ég get alveg gengið og allt það en ef ég gleymi mér og rétti alveg úr fætinum þá meiði ég mig. Vonandi jafnar þetta sig á helginni. |
posted by Latur Bloggari @ 09:42 |
|
|
mánudagur, nóvember 21, 2005 |
Kemst þó hægt fari |
Jæja ég mjakast enn í átt að markmiðinu mínu... en það gengur samt ekki alveg eins vel og ég vildi. Nú er bara að taka á honum stóra sínum og rífa sig upp á rassgatinu og breyta mataræðinu. Það þýðir ekkert minna en það. |
posted by Latur Bloggari @ 09:20 |
|
|
mánudagur, nóvember 07, 2005 |
Uppfærsla |
Jæja þá er ég búin að fara í 3 tíma í námskeiðinu mínu og gera mig að algeru fífli :p Eróbikk er ekki alltaf sammála mér :p
Hmmm... vigtin er ekki alveg upp á sitt besta en maður verður bara að taka sig á. Á morgun er fyrirlestur hjá næringarráðgjafa og er ég að vona að maður læri eitthvað af honum. Sérstaklega því ég þarf að taka mér frí í vinnu til að fara á hann :s
Svo eru sorgarfréttir, hún Dögg tíkin hans pabba er dáin. Hún varð lasin og það þurfti því miður að svæfa hana. Það ríkir mikil sorg í fjölskyldunni því þetta var einn besti hundur sem við höfum haft í kringum okkur. |
posted by Latur Bloggari @ 23:41 |
|
|
|
Um mig |

Name: Latur Bloggari
Home: Reykjavík, Iceland
About Me:
See my complete profile
|
Fyrri færslur |
|
Tenglar |
|
Færslusafn |
|
Powered by |
 |
|